Tækið er hlaðið nýjum möguleikum sem eykur virði þess umtalsvert. Fyrst má nefna notendaviðmótið, en 10.1" snjallskjár er nú orðinn staðalbúnaður og því einstaklega þægilegt fyrir notendur að vinna á tækið. Mikið er lagt upp úr vinnsluhraða en tækið er búið öflugum örgjörva, 2 GB vinnsluminni og 320 GB hörðum diski, tækið hentar því mjög vel í prentlausnir þar sem keyra þarf hugbúnað.
Tækið er einnig búið matara sem skannar beggja megin í einu (Single pass document feeder) sem eykur skönnunargetu tækis umtalsvert þegar skannað er beggja megin.
Hægt að skanna beint inn í Dropbox eða Sharepoint. Mögulegar aðgerðir: ljósritun, prentun, litaskönnun og innbyggt fax. Einfalt er að að senda skjöl frá snjalltækjum í prentun.
Lýsing vöru:
- Afköst: 37 bls. á mínútu í s/h
- Matari, 100 bls.
- 50 bls. Bypass
- Duplex (tvíhliða prentun): Staðalbúnaður
- Minni 2,0 GB
- Harður diskur 320 GB
- Netkort, Ethernet 10 base- T/100 base- TX
- Prentreklar: PCL 5c, PCL6, PDF, PostScript 3
- Upplausn upp í 1200x1200 dpi
- Skannar beggja megin í einu (SPDF)
- Skönnun: 43 bls á mínútu í lit ·
- Skönnun í tölvupóst, möppu, USB, SD kort
- Skráarsnið: TIFF, JPEG, PDF/A og fleira.
- Pappírs þykktir: 52 - 220 g/m2 ·
- Pappírsstærðir: A5, A4, B5 og fleira.
- Pappírsskúffur 1x 500
- Tækið kemur með 14.000 bls byrjunartóner. (ISO/IEC 19752)
Aukahlutir í boði:
- Skápur undir vél
- 1x550 bls pappírsskúffa
- 2x550 bls pappírsskúffur